top of page

OKKAR BORG - OKKAR FRAMTÍÐ

Við í Okkar Borg deilum áhyggjum íbúa Reykjavíkur á því í hvaða átt borgin hefur þróast á umliðnum árum.

AdobeStock_491026753.jpeg

HVERT STEFNIR REYKJAVÍK?    HVAÐ VILJUM VIÐ?

Reykjavík á að vera örugg, vel skipulögð, sjálfbær, falleg og hrein. Því miður blasir hið gagnstæða við, hnignun í þjónustu, grotnandi innviðir, eyðilegging á skipulagi, ábyrgðarleysi og meingölluð framtíðarsýn.

Blákaldur raunveruleikinn er sá að ekki er unnið fyrir kjósendur Reykjavíkurborgar. Fjárhagur borgarinnar er í molum, reksturinn er handahófskenndur og borgarfulltrúar önnum kafnir við að byggja glórulausar skýja- og spilaborgir ásamt því að handvelja verkefni fyrir hagsmunaaðila sem tengjast inn í borgarstjórn með beinum eða óbeinum hætti.

 

Þá er sérstaklega unnið að því að gera sem mest fyrir hælisleitendur sem, margir hverjir, eru eingöngu hingað komnir til til þess að lifa á íslensku velferðarkerfi. Þjónustan sem þeim stendur til boða er ekki aðgengileg hinum almenna íbúa Reykjavíkur eins og t.d. frítt fæði, húsnæði, laun, samgöngur, sund og líkamsrækt að ógleymdri þjónustu skóla, leikskóla, lækna, tannlækna, sálfræðinga, félagsráðgjafa, túlkaþjónustu auk inneigna í verslunum og apótekum svo fátt eitt sé nefnt. Allt í boði skattgreiðenda!

 

Skert þjónusta við borgarbúa.

 

Á sama tíma er þjónusta við borgarbúa sífellt skert.  Sem dæmi eru langir biðlistar inn á leikskóla, grunnskólanemendur læra ekki að lesa og skrifa, kennarar og nemendur verða fyrir ofbeldi innan veggja menntastofnanna og skólar fá ekki eðlilegt viðhald, grotna niður og mygla, sundlaugar eru lýstar ónýtar, eldri borgarar fá enga þjónustu, ungmenni með fíknivanda eru send til syðsta odda Afríku með von um bata og daglega verður stór tjón á ökutækjum vegna holótta gatna.
 

Ofurkapp er lagt á meðalmennsku barna í skólakerfinu í nafni „jafnréttis“ þar sem jafnað skal sem mest niður á við, íslenskum gildum og íslenskri menningu er kastað fyrir róða í skiptum fyrir hið óskilgreinda fyrirbæri „fjölmenningu“ sem ríkjandi borgarmeirihluti virðist elska umfram flest annað. Kynjafræði er troðið upp á börn án þess að foreldrar fái eitthvað um það að segja, að því ógleymdu að Kristinfræði hefur verið aflögð sem kennslugrein og kirkjuheimsóknir grunnskóla bannaðar börnum. Þetta er dæmi um fjölbreytileikann sem við eigum að fagna!!!

 

Okkar Borg - var stofnuð til þess að snúa þessari þróun við!

 

Við ætlum ekki að horfa aðgerðarlaus upp á Reykjavíkurborg brenna til kaldra kola og rústirnar breytast í forarpytt. Dæmin um glæpavæðingu, gengjamenningu, morð, mansal, eiturlyfjasölu og sprengjuárásir eru skammt undan hjá vinaþjóðum okkar á Norðurlöndunum. Við ætlum ekki þangað!!! Við ætlum EKKI í þá vegferð!!!  Við í Okkar Borg bjóðum upp á skýra og RAUNHÆFA stefnu og heitum því að endurreisa borgina! Reykjavík er höfuðborg Íslands  og hún á að vera stolt Reykvíkinga sem og allra landsmanna.

SKÝRAR BREYTINGAR!

 

Í stefnuskrá okkar kemur SKÝRT fram að við ætlum að hreinsa til í rekstri borgarinnar, bera ábyrgð, tryggja og styrkja grunnþjónustu og taka U-beygju í skipulagsmálum sem varða samgöngur, húsnæðismál og öryggi borgaranna. Byggjum breitt en ekki þétt! Byggjum til framtíðar. Við í Okkar Borg ætlum að taka til í hælisleitendamálunum og bótakerfinu og endurskoða ALLAR greiðslur sem renna til þessa ört vaxandi málaflokks. Við ætlum að laga meingallað skipulag bæði í gatna- og húsnæðismálum. Við ætlum að byggja upp borg sem virkar fyrir alla, þ.e. einstaklinga, fjölskyldur, atvinnulíf og framtíðarkynslóðir.

 

Reykjavík á aftur að verða borg sem við öll getum verið stolt af. Framtíðin er okkar!

 

Okkar Borg!

bottom of page